Höfundur

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson

Eyfellingur sem fluttist til höfuðborgarinnar til að freista gæfunnar og stundar nám við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Hin einfætti Riise

3031906316Ég sé ekki eftir þeirri skyndiákvörðun að horfa á leik Liverpool og Chelsea í meistaradeildinni. Ég ætlaði bara að halda áfram að læra og fylgjast með á netinu en lét freistast og fór með strákunum á Classic Rokk. Það var svakaleg spenna í loftinu og þegar flautað var til leiks var alveg dauðaþögn inni á staðnum.  

Leikurinn kom mér svolítið á óvart þar sem hann var mun skemmtilegri og opnari en ég bjóst við. Liverpool voru yfir í hálfleik eins og ég var búinn að reikna með og í seinni hálfleik bjóst ég við að Liverpool myndi bara klára þetta. En hin einfætti John Arne Riise tryggði Chelsea jafntefli með seinustu snertingu leiksins. Í staðinn fyrir að sparka boltanum í burtu með hægri reynir hann að bjarga í horn með skalla en það vill ekki betur til en að boltinn fer markið. Chelsea í lykilstöðu fyrir seinni leikinn og ég reikna fastlega með því að ég horfi á hann. 


mbl.is Riise skoraði sjálfsmark og tryggði Chelsea jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öss, hvað Chelsea voru heppnir verð ég að segja.. Hef aldrei öskrað jafnhátt og þegar þetta undarlega lokamark kom..

Kári Georgsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 22:38

2 Smámynd: Ingólfur Birgir Sigurgeirsson

já ég er sammála þér. Þetta var frekar skrítið mark og ég vissi rauninni ekki hvernig ég átti að haga mér. Rauk upp eins og asni og fór svo bara að skelli hlæja. Ein mestu mistök sem ég hef séð.

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, 23.4.2008 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband