Höfundur

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson

Eyfellingur sem fluttist til höfuðborgarinnar til að freista gæfunnar og stundar nám við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Engir Stúdentar enginn Háskóli

Veturinn 2008-2009 tók Háskóli Íslands gott og þarft framfaraskref í átt að betri þjónustu við Stúdenta. Eftir margra ára baráttu Stúdenta var loks hægt að taka upptöku- og sjúkrapróf strax eftir annarprófin eða í janúar og desember. Var þetta af flestra mati góð þróun og skref í rétta átt fyrir Háskóla sem vill láta taka sig alvarlega og keppist um að veita stúdentum bestu mögulegu þjónustu sem íslenskur Háskóli getur veitt.

Það kom því sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir okkur Stúdenta þegar nokkrar af stærstu deildunum innan Háskólans ákváðu skyndilega að hörfa til baka með þessar breytingar og afnámu sjúkra- og upptökupróf í janúar og desember fyrir þennan vetur 2009-2010. Án nokkurs fyrirvara eða samráðs við stúdenta var þessi ákvörðun tekin þvert á reglur Háskóla Íslands. Í reglum Háskóla Íslands stendur meðal annars skýrt um próf og próftímabil að í kennsluskrá skuli birtar almennar upplýsingar um próf, þjónustu við stúdenta, réttindi þeirra og skyldur. Við það skal miðað að kennsluskráin sé birt á vef háskólans í mars ár hvert fyrir komandi háskólaár. Allar breytingar á kennsluskrá skal tilkynna stúdentum skriflega eigi síðar en við upphaf kennslumisseris.

Þessar reglur voru þver brottnar og barst ekki tilkynning til stúdenta um þessar breytingar fyrr en um mitt misseri. Í sumum deildum var ekki einu sinni haft fyrir því fyrr að breyta kennsluskrá fyrr en í lok nóvember. Það er því óskiljanlegt að Háskóli Íslands sem hefur oft verið nefndur sem flaggskip íslenskrar menntunar sýni stúdentum það virðingarleysi að brjóta sýnar eigin reglur á kostnað okkar stúdenta. Þarna kemur því miður fram það hugarfar sem stjórnendur Háskólans virðast oft hafa til stúdenta. 

Þessar breytingar koma sér sérstaklega illa fyrir okkur. Sem dæmi má nefna að nú gengur skæð flensa yfir landann og þegar dagarnir verða kaldari og veturinn færist yfir má alveg búast við því að fleiri veikist og geti þess vegna ekki tekið öll sín próf og skilað fullnægjandi námsárangri. Þessir einstaklingar geta ekki tekið sjúkrapróf í Háskóla Íslands fyrr en í júní, hérna held ég að það sé gott að staldra við og minna á að núna er 21. öldin en svona virkar þetta bara hérna megin við Vatnsmýrina! Þessir stúdentar eiga það á hættu að ná ekki nægilegum námsárangri til að fá greitt út námslánin sín sem eru oft einu tekjur þeirra yfir veturinn. Það er nokkuð hart að þurfa að bíða eftir tekjum fram í júní ef maður dettur í flensu í eina viku í desember.

Við Stúdentar höfum bent á þetta ósanngirni frá því að málið kom upp. Um 3.600 manns skrifuðu á undirskriftalista og hvöttu Háskólann til að taka til baka ákvörðun sína. Við höfum talað fyrir mjög daufum eyrum háskólayfirvalda sem kippa sér lítið upp við skoðanir Stúdenta. Enda eru ekki nein viðurlög við því þegar Háskólinn sjálfur brýtur sínar eigin reglur, bara þegar nemendum verður á. Ekki einu sinni rektor gat gefið sér 5 mínútur af sínum tíma yfir heila vikur til að taka á móti undirskriftum og hlusta á það sem stúdentar höfðu að segja.

Hvað segir þetta okkur um stjórnun Háskóla íslands? Er það þannig að rektor og aðrir stjórnendur þessarar menntastofnunar vinni hér einungis fyrir hvorn annan en ekki stúdenta. Fyrir hverja er þá Háskólinn?  Er hann bara fyrir fræðimenn til að sinna rannsóknum sínum, skrifa í fín tímarit og stúdentar eru hafðir með svo hægt sé að kalla þetta skóla. Þessi ákvörðun um breytingar á sjúkra- og upptökuprófum er því miður ekki einsdæmi um umdeildar ákvarðanir sem eru teknar á bak við stúdenta. Ég held að stúdentar eigi það skilið að á þá sé hlustað og þeir hafðir með í ráðum þegar stórar og umdeildar ákvarðanir eru teknar. Til að við getum þróað með okkur gott og farsælt háskólasamfélag þurfum við að byrja á að þróa gott samstarf og gagnkvæma virðingu. Háskóli Íslands er í virkri samkeppni við aðra skóla bæði innanlands sem utan og þess vegna minni ég háskólayfirvöld á það að engir stúdentar þýðir enginn Háskóli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband