Höfundur

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson

Eyfellingur sem fluttist til höfuðborgarinnar til að freista gæfunnar og stundar nám við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bandið hans Bubba búið....

bubbiÞá held ég að það sé bara komið gott í bili af svona íslensk - amerískum söng raunveruleika þáttum. Eru ekki allir orðnir frekar þreyttir á þessu öllu saman, aftur og aftur. Ég sá nú ekki einn þátt ef þessum Bandið hans Bubba enda ekkert að leitast eftir því en heyrði samt að þetta hafi verið hálf misheppnað. Misgóðir söngvarar að reyna fyrir sér með kónginn flatmaga í hásætinu eins og blöðruselur baðandi höndum í allar áttir. Öskrandi og æpandi stút  fullur af egói.

Ég seigi nú bara svona, þetta hafa sennilega verið ágætis þættir og er Eyþór Ingi sennilega bara vel að sigrinum kominn held. Ég sá hann alla veganna í söngkeppni framhaldsskólanna um síðustu helgi og  hann var flottur þar. Bubbi er nú bara alltaf Bubbi, ég hef alltaf haft gaman af honum og hlustað mikið á hann. Hann fer nú stundum aðeins yfir strikið með töffarastælana en hann er nú bara  Bubbi og hefur þess vegna einkarétt á egóinu 


mbl.is Eyþór hreppti stöðuna í Bandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það talar engin svona um Kónginn! Vonandi verður þér stungið inn fyrir þessi ummæli.

Ingimar (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 22:56

2 identicon

Þú ætti að skammast þín, þetta voru frábærir þættir. Ég fór að gráta þegar Eyþór vann í gær.... Þetta er svo mikið tækifæri fyrir menn sem vilja verða eins og Bubbi....

Siggi (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband