Höfundur

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson

Eyfellingur sem fluttist til höfuðborgarinnar til að freista gæfunnar og stundar nám við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Morgunblaðið 30. mars 2008

Lýðræðið virt að vettugi

 

Það fór varla fram hjá neinum að í síðasta mánuði voru kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Eftir margra vikna þrotlausa vinnu frambjóðenda við að koma málefnum fylkinganna tveggja, Vöku og Röskvu, á framfæri kusu stúdentar 6. og 7. febrúar sl. og voru úrslit kunngjörð aðfararnótt 8. febrúar. Vaka hlaut 1686 atkvæði og Röskva 1692 og hélt Röskva því naumlega meirihluta sínum í Stúdentaráði.

Spurningar vöknuðu meðal stúdenta og þá sérstaklega meðal fulltrúa og stuðningsmanna Vöku um það hvernig skipta ætti störfum Stúdentaráðs. Með tilliti til lítils munar milli fylkinga skiptist skólinn nánast hníf jafnt og væri því eðlilegt að stúdentar fengu að sjá þá fulltrúa sem þeir kusu taka virkan þátt og hafa áhrif innan Stúdentaráðs.

Vökuliðar biðu spenntir eftir fréttum frá Röskvu og vonuðu að þeir myndu fá umsjón með einhverjum nefndum til að koma sínum málefnum í framkvæmd. Staðreyndin er sú að Röskva hafði ekki samband við Vöku fyrir skiptafundinn heldur varð oddviti Vöku að hafa samband við Röskvu daginn fyrir til að athuga með skiptingu í nefndir. Fengust þá upplýsingar að skipting nefnda yrði með svipuðum hætti og starfsárið 2007–2008. Niðurstaðan var því sú að Röskva fengi meirihluta (3 af 5 fulltrúum) auk formanns í öllum sjö nefndum Stúdentaráðs. Einkennileg túlkun á lýðræðinu og lítill skilningur á vilja stúdenta er óhætt að segja.

Þetta stoppaði ekki okkur í Vöku, við höfðum unnið ötullega í kosningunum að smíðan sterkrar málefnaskrár sem við vildum hrinda í framkvæmd og sóttumst því eftir ýmsum trúnaðar- og ábyrgðarstöðum innan Stúdentaráðs til að auðvelda okkur að koma á framfæri þeim málefnum sem 49.91% stúdenta kusu. Kristján Freyr Kristjánsson, oddviti Vöku bauð sig fram til formanns Stúdentaráðs en Röskvuliðar kusu það strax niður án nokkurrar umræðu um hæfni hans eða getu til að gegna starfinu. Ingólfur Birgir Sigurgeirsson stúdentaráðsliði bauð sig fram sem fulltrúi stúdenta í stjórn LÍN en það var einnig kosið niður án minnstu umræðu og loks sóttist Anna Sigríður Hafliðadóttir eftir því að verða formaður alþjóðanefndar og var það einnig kosið niður.

Nýtt Stúdentaráð tók formlega við 21. febrúar sl. og er því ekki mánuður síðan ráðið tók til starfa en strax er augljóst að yfirlýsingar af hálfu meirihlutans um samstarf fylkinganna í Stúdentaráði eru einungis í orði en ekki á borði.

Það má þó segja að meirihluti Röskvu hafi farið yfir öll mörk þegar kom að því að ráða framkvæmdarstjóra Stúdentaráðs. Samkvæmt 57. og 64.gr. laga Stúdentaráðs skal sú ráðning vera byggð á faglegum grunni. Tveir sóttu um stöðuna, Atli Bjarnason Vöku og fulltrúi af framboðslista Röskvu. Það fór ekkert á milli mála þegar umsóknir þessara tveggja aðila voru lesnar yfir að Atli Bjarnason væri með mun betri grunn og reynslu til að gegna stöðu framkvæmdarstjóra heldur en mótframbjóðandi hans. Atli Bjarnason er á þriðja ári í viðskiptafræði og rak sitt eigið fyrirtæki á Akureyri í fjögur ár samhliða námi við Menntaskólann á Akureyri, þar sem hann tók einnig virkan þátt í félagslífi skólans og sat meðal annars í stjórn nemendafélagsins. Reynsla hans af stjórnun, bæði hvað varðar fjármál og einnig mannauðsstjórnun skipar honum stalli ofar en mótframbjóðanda hans. Það skal þó tekið fram að ekki er verið að gera lítið úr hæfni frambjóðenda Röskvu heldur viljum við benda á að með tilliti til starfsreynslu, forms umsóknar og menntunar teljum við að ekki hafi verið ráðið í þessa stöðu á faglegum grunni eins og lög gera ráð fyrir.

Undirrituð vonast til þess að aðstæður í Stúdentaráði þróist í þá átt að raunverulegt samstarf geti átt sér stað, enda annað óeðlilegt gagnvart stúdentum þar sem einungis 0.18% munur er á fylgi fylkinganna. Stúdentaráð er skipað 20 fulltrúum beggja fylkinga, en ekki einungis 11 fulltrúum meirihluta Röskvu. Sandkassaleikur og framapot sem fulltrúar Röskvu hafa ásakað Vöku um, og nú síðast í fjölmiðlum á lokaspretti kosningabaráttunnar er nú í hámarki, og lýðræðið innan stúdentapólitíkarinnar er fótum troðið. Þegar það virðist vera skilyrði að vera bundinn Röskvuböndum til að fá að gegna trúnaðarstörfum í hagsmunabaráttu stúdenta er gert lítið úr lýðræðinu og pólitískar ráðningar virðast eiga að koma ákveðnum vinveittum einstaklingum á framabraut.

Ingólfur Birgir Sigurgeirsson og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband